Rafræn útskrift í Háskólanum á Akureyri
Vegna aðstæðna og þeirra reglna sem gilda um fjöldatakmarkanir hefur Háskólaráð Háskólans á Akureyri samþykkt tillögu framkvæmdastjórnar um að brautskráning 2020 verði með rafrænum hætti. Formlegur brautskráningardagur er áfram 13. Júní.
„Niðurstaða þessi er erfið fyrir okkur öll enda brautskráningarhátið mikil uppskeruhátíð fyrir nemendur og starfsfólk skólans. Breyttar aðstæður kalla á breytt fyrirkomulag, gerum það besta úr aðstæðum,“ segir á vef skólans.