Ræða mögulega gjaldtöku í Lystigarðinn

Lystigarðurinn er vinsæll viðkomustaður.
Lystigarðurinn er vinsæll viðkomustaður.

Á bæjarstjórnarfundi á Akureyri í síðustu viku var umræða um þann möguleika að rukka inn í Lystigarðinn á Akureyri. Lystigarðurinn er ein af mörgum perlum bæjarins og er garðurinn afar fjölsóttur, þá sérstaklega yfir sumartímann.

Þar sem það kostar sitt að reka garðinn hafa bæjaryfirvöld velt þeirri spurningu upp hvort rukka eigi aðgangseyri. Samkvæmt upplýsingum blaðsins eru bæjarfulltrúar flestir á því að setja upp valgreiðslur með einhverjum hætti og að hægt yrði að nota kort til slíks.

Engin ákvörðun hefur hins verið tekin.

Nýjast