Prestaköll í Eyjafirði sameinast í hátíðarguðsþjónustu á N4

Akureyrarkirkja.
Akureyrarkirkja.

Vegna samkomubannsins í kjölfar kórónaveirufaraldursins hafa fjögur prestaköll í Eyjafirði sameinast um hátíðarguðsþjónustu á páskadag, sem sjónvarpað verður á N4. Prestaköllin sem um ræðir eru Glerár-, Akureyrar-, Laugalands-, og Laufásprestakall. Upptaka hátíðarguðsþjónustunnar fór fram í Akureyrarkirkju og sjá samtals sjö djáknar og prestar prestakallanna um að þjóna. 

Kórinn Hymnodia syngur undir stjórn Eyórs Inga Jónssonar. Margrét Árnadóttir syngur einsöng við undirleik Valmars Valjots á fiðlu og Sigrúnar Mögnu Þórsteinsdóttur á orgel. Orgelleikarar eru þau Sigrún Magna Þórsteinsdóttir og Eyþór Ingi Jónsson. Stefán Friðrik Friðriksson stjórnaði upptöku.

Eins og fyrr segir verður hátíðarguðsþjónustunni í Akureyrarkirkju sjónvarpað á N4 á páskadag og hefst útsendingin klukkan 14:00. 

Nýjast