Opnar málverkasýninguna Heimferð
Dagbjört Brynja Harðardóttir Tveiten opnar málverkasýningin Heimferð í kaffihúsinu og listagalleríinu Brúnum í Eyjafjarðarsveit á morgun, föstudaginn 26. október kl. 18:00. Sýningin stendur til 26. nóvember og er opin á opnunartíma listagallerísins.
Málverkasýningin Heimferð er ferðalag sem hefur staðið yfir í tvö ár að sögn Brynju. Þetta tímabil hefur einkennst af margbreytilegum tilfinningum, þakklæti, von, ótta, sorg og sátt tengdum veikindum og missi í fjölskyldu listakonunnar, segir í tilkynningu. Að því er Brynja lýsir hefur verið ómetanlegt að fara á vinnustofuna á slíkum stundum. Finna ró og kraft í myndsköpun sem vísar í draumkenndar minningar um útsýnið sem blasti við frá herbergisglugga bernskuheimilis hennar á Árskógssandi. Himinn, fjöll og haf renna saman við sjóndeildarhringinn en Brynju líður hvergi betur en með hafið fyrir augum. Öll verkin eru unnin með olíu. Myndbygging er einföld og flæðir milli birtu, myrkurs, kyrrðar og óróleika.
Brynja lærði myndlist í Myndlistaskólanum á Akureyri og Örebro konstskola í Svíþjóð. Þetta er fjórða málverkasýning hennar en að auki hefur hún haldið þrjár ljósmyndasýningar. Brynja hefur sinnt ýmsum störfum meðfram listsköpun sinni, m.a. innan heilbrigðis-, fjármála-, menntunar- og menningargeirans og starfar núna á Sjúkrahúsinu á Akureyri.