ÖA fær 27 milljónir til uppbyggingar
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur úthlutað 495 milljónum króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra til uppbyggingar í öldrunarþjónustu. Rúmlega 27 milljónir renna til Öldrunarheimila Akureyrar. ÖA fengu úthlutað fjármagn til endurbóta í eldhúsum, endurnýjunar síma- og sjúkrakallskerfis og uppsetningar á lyftu í Víðihlíð og Furuhlíð.
Hæstu framlögin úr sjóðnum runnu að þessu sinni til endurgerðar hjúkrunarrýma á gamla Sólvangi í Hafnarfirði og til uppbyggingar þjónustumiðstöðvar við Sléttuveg í Reykjavík. Aðrar úthlutanir úr Framkvæmdasjóði aldraðra voru til smærri viðhaldsverkefna á hjúkrunarheimilum víðsvegar um landið, segir á vef Akureyrarbæjar.