Nýtt kaffihús tekur til starfa í Listasafninu
Á kynningarfundi sem haldinn var í Listasafninu á Akureyri á dögunum var nýtt kaffihús kynnt. Hlynur Hallsson, safnstjóri, og Auður B. Ólafsdóttir undirrituðu samning um rekstur kaffihúss í Listasafninu. Kaffihúsið mun bera heitið Kaffi og list og hefur starfsemi 1. mars næstkomandi.
„Ég er mjög spennt og full tilhlökkunar yfir að hefja starfsemi í þessu glæsilega húsi og fá að taka þátt í lifandi starfsemi safnsins og Listagilsins“, sagði Auður við undirritun.
„Kaffi og list mun bjóða upp á gott úrval kaffidrykkja úr fyrsta flokks kaffibaunum frá Te og kaffi ásamt öðrum fjölbreyttum veitingum. Hér eru miklir möguleikar á líflegri starfsemi kaffihúss og ekki síst á sumrin þegar hægt verður að taka útisvæðið til notkunar og jafnvel útisvalir Listasafnsins þegar aðstæður leyfa,“ segir Auður.