Nýr sóknarprestur í Glerárkirkju

Sindri Geir Óskarsson.
Sindri Geir Óskarsson.

Sindri Geir Óskarsson er nýr sóknarprestur í Glerárkirkju og tekur við starfinu af Gunnlaugi Garðarssyni. Alls sóttu þrír um stöðuna. Á vef Þjóðkirkjunnar segir að Sindri Geir sé fæddur árið 1991 og uppalinn á Akureyri.

Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 2010 og mag. theol.,-prófi frá H.Í. árið 2016. Nokkru eftir að hann lauk guðfræðiprófi fluttist hann ásamt fjölskyldu sinni til Noregs og starfaði þar sem „prestevikar“ (óvígður afleysingamaður prests), í tæp tvö ár.

Undanfarin ár hefur sr. Sindri Geir fengist við kennslu á Akureyri, unnið sem svæðistjóri KFUM & K á Norðurlandi og sem ráðgjafi hjá Vinnumálastofnun. Í Glerárprestakalli er ein sókn, Lögmannshlíðarsókn, með rúmlega sjö þúsund íbúa og eina kirkju, Glerárkirkju.

Nýjast