13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Norðlenskir listamenn sýna verk sín
Í dag, laugardaginn 18. maí kl. 15:00 verður sýningin Vor opnuð í Listasafninu á Akureyri. Þar sýna 30 norðlenskir myndlistarmenn verk sín sem er ætlað að gefa innsýn í líflega flóru myndlistar á Akureyri og Norðurlandi.
Sýningin er tvíæringur og afar fjölbreytt, bæði hvað varðar aðferðir og miðla. Til sýnis verða m.a. málverk, videóverk, skúlptúrar, ljósmyndir og teikningar. Sambærileg sýningin var síðast haldin í Listasafninu sumarið 2017.
Listamennirnir sem taka þátt í sýningunni eru Arna Valsdóttir, Árni Jónsson, Baldvin Ringsted, Bergþór Morthens, Brynhildur Kristinsdóttir, Brynja Baldursdóttir, Eiríkur Arnar Magnússon, Fríða Karlsdóttir, Habby Osk, Heiðdís Halla Bjarnadóttir, Hekla Björt Helgadóttir, Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Helga Sigríður Valdimarsdóttir, Hólmfríður Vídalín Arngrímsdóttir, Jonna–Jónborg Sigurðardóttir, Joris Rademaker, Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá, Lilý Erla Adamsdóttir, Mari Mathlin, Ragnheiður Björk Þórsdóttir, Rebekka Kühnis, Rósa Njálsdóttir, Samúel Jóhannsson, Sara Björg Bjarnadóttir, Sigríður Huld Ingvarsdóttir, Sigurður Mar Halldórsson, Snorri Ásmundsson, Stefán Boulter, Svava Þórdís Baldvinsdóttir Júlíusson og Þórdís Alda Sigurðardóttir.
Vor stendur til 29. september og verður opin alla daga kl. 10-17.