13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Mozart í Hofi um páskana
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands stendur fyrir tvennum stórtónleikum í páskavikunni þegar tvö af stærstu verkum Mozarts verða flutt í Hofi á Akureyri og í Langholtskirkju. Í tilkynningu frá Menningarfélagi Akureyrar (MAk) er haft eftir Þorvaldi Bjarna Þorvaldssyni, tónlistarstjóra MAk, að á tónleikunum sé ekki verið að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur.
„Nú er það Mozart Requiem í flutningi Garðars Thórs Cortes, Hönnu Dóru Sturludóttur, Ágúst Ólafssonar og hinnar norðlensku Helenu Guðlaugar Bjarnadóttur,“ segir Þorvaldur Bjarni, sem kveðst vera ánægður með valið á einsöngvurunum. „Garðar Cortes er á hátindi ferilsins, Hanna Dóra nýbúin að eiga stórsigur í Brothers, Ágúst hefur aldrei verið betri og Helena Guðlaug sýndi í Matteusarpassíunni í fyrra, þar sem hún með engum fyrirvara hljóp í skarð sjálfrar Hönnuh Morrison, að stjarna er fædd í íslensku söngsenunni,“ segir Þorvaldur.
Kammerkór Norðurlands og Söngsveitin Fílharmónía mynda 80 manna kór á tónleikunum en hljómsveitarstjórinn er en hin finnska Anna-Maria Helsing. „Rúsínan í pylsuendanum er einn fallegasti píanókonsert sögunnar; píanókonsert nr. 20 í d-moll eftir Mozart. Þar verður einleikari vonarstjarna Norðlendinga í sígildri tónlist, Alexander Edelstein,“ segir Þorvaldur Bjarni. Tónleikarnir verða í Hofi á skírdag og í Langholtskirkju föstudaginn langa. Miðasala er á mak.is og tix.is.