Lokað fyrir heimsóknir vegna COVID-19
Öldrunarheimili Akureyrar (ÖA) hafa tekið þá ákvörðun að loka hjúkrunarheimilum sínum fyrir heimsóknum ættingja og annarra gesta. Tók heimsóknarbannið gildi þann 7. mars og gildir þar til annað verður formlega tilkynnt. Er þetta gert að höfðu samráði við Sóttvarnarlækni og Landlækni eftir að Neyðarstigi almannavarna var lýst yfir.
„Öldrunarheimili Akureyrar eru hér að fylgja eindregnum tilmælum þessara aðila sem eru í framvarðasveit Almannavarna Íslands,“ segir í tilkynningu frá ÖA. Þar segir ennfremur að nú sé staðfest að smit vegna Kórónaveirunnar hafa borist á milli einstaklinga í þjóðfélaginu. Þar sem íbúar Öldrunarheimila Akureyrar eru flestir aldraðir og / eða með ýmsa undirliggjandi sjúkdóma eru þeir í sérstökum áhættuhóp tengt því að veikjast alvarlega af Kórónaveirunni.
„Leita þarf allra leiða til að draga úr þeirri hættu að íbúar heimilanna veikist af Kórónaveirunni. Okkur þykir mjög leitt að þurfa að taka svo stóra ákvörðun en þetta er gert með velferð íbúanna okkar í húfi og biðjum við fólk að sýna þessari ákvörðun virðingu og skilning. Það er ljóst að það getur reynst íbúa mjög erfitt að fá ekki heimsóknir frá ættingjum sínum og á sama hátt getur það reynst ættingjum íbúans mjög erfitt að heimsækja hann ekki. Það er samt nauðsynlegt að grípa til þessara ráðstafanna til að koma í veg fyrir að íbúi veikist af veirunni og eins geta smit borist frá ættingjum eins íbúa til annars íbúa.Jafnframt verður umferð allara annara gesta, takmörkuð inn á Öldrunarheimilin og gerðar hafa verið sérstakar reglur um það. Svo sem birgja með vörur, iðnaðarmenn og aðra sem þurfa að koma inn á heimilin,“ segir í tilkynningu.
Háskóladeginum frestað
Þá tóku rektorar háskóla landsins sameiginlega ákvörðun um að fresta Háskóladeginum á Akureyri um óákveðinn tíma. Allir sjö háskólar landsins standa saman að Háskóladeginum en stefnt hafði verið að því um nokkurt skeið að halda veglegan Háskóladag á Akureyri laugardaginn 7. Mars sl. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HA. ,,Þar sem hættustig almannavarna hefur nú verið uppfært í neyðarstig vegna kórónaveirunnar (COVID-19) þá hafa rektorar háskóla landsins, tekið sameiginlega ákvörðun um að Háskóladeginum á Akureyri skuli að svo stöddu frestað, um óákveðinn tíma,” segir í tilkynningunni.