Lögreglan hvetur fólk til að fara varlega

Lögreglan á Norðurlandi eystra hvetur fólk til að sýna varkárni í veðrinu sem er framundan. Appelsínugul veðurviðvörun er fyrir Norðurland eystra. Í athugasemd á vef Veðurstofunnar segir: ,,Suðvestan og vestan hríðarveður, víða 20-28 m/s, éljagangur, einkum í Eyjafirði og norðantil á svæðinu. Skafrenningur með lélegu skyggni, víðtækar samgöngutruflanir líklegar, lokanir á vegur og ekkert ferðaveður á meðan viðvörunin er í gild. Fólki er bent á að sýna varkáni og fylgjast með veðurspám.“

Þegar spákort eru skoðuð má sjá að vindur muni aukast á Eyjafjarðarsvæðinu þegar líður að hádegi og að það verði suðvestan og vestanátt. Með þessu fylgi úrkomubakki. Veðrið gangi þó nokkuð hratt yfir og verði byrjað að ganga niður aftur seinnipartinn í dag. Þeim sem eiga börn í grunn- eða leikskólum er ráðlagt að fylgjast með heimasíðu viðkomandi stofnunar.

"Reynslan hefur kennt okkur að suðvestanátt getur verið erfið á Akureyri, sérstaklega í Glerárhverfi þar sem suðvestanáttin kemur oft öflug niður úr Glerárdal. Bendum einnig á heimasíðu Vegagerðarinnar en þar kemur m.a. fram að Öxnadalsheiði, Siglufjarðarvegur og Ólafsfjarðarmúli eru lokaðir, þegar þetta er skráð. Leitum upplýsinga og förum varlega!," skrifar lögreglan. 

Nýjast