Leiðrétting varðandi leikskólagjöld
Fræðslusvið Akureyrarbæjar vill koma á framfæri leiðréttingu við skrif Drífu Snædal, forseta ASÍ, undir fyrirsögninni „Nokkur orð um hækkun fasteignagjalda á Akureyri” og birtist í síðasta blaði. Í grein sinni fjallar Drífa m.a. um hækkun leikskólagjalda miðað við 8 tíma vistun og segir hækkunina 3,2%.
Í tilkynningu frá fræðslusviði bæjarins segir hins vegar að hið rétta sé að hækkunin nemi 2,5%, úr 38.038 kr. í 38.988,- kr. Árshækkun miðað við 11 mánuði er því 10.450,- kr. en ekki 13.288 kr., segir í tilkynningu fræðslusviðs.