13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Kertum fleytt á Leirutjörn í kvöld
Árleg kertafleyting verður við Leirutjörnina á Akureyri, austan við Minjasafnið, í kvöld, föstudag, til að minnast kjarnorkusprengjanna sem var varpað á Hiroshima og Nagasaki 1945.
Kertum hefur verið fleytt á Íslandi, bæði á Akureyri og í Reykjavík, um þetta leyti í mörg ár til minningar um fórnarlömb árásanna.
Viðburðurinn hefst klukkan 22 í kvöld.
Wolfgang Frosti Sahr framhaldsskólakennari flytur ávarp. Kerti verða seld á staðnum.
Samtök hernaðarandstæðinga á Norðurlandi standa fyrir kertafleytingunni og má finna nánari upplýsingar á Facebook-síðu viðburðarins