20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
KEA úthlutaði styrkjum til 64 aðila
Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA afhenti styrki úr Menningar- og viðurkenningarsjóði KEA, laugardaginn 1. desember og fór styrkúthlutunin fram í Menningarhúsinu Hofi. Þetta var í 85. skipti sem KEA veitir styrki úr sjóðnum. Auglýst var eftir styrkjum í október síðastliðnum og bárust tæplega 140 umsóknir.
Úthlutað var rúmlega 15,6 milljónum króna til 64 aðila. Styrkúthlutun tók til þriggja flokka samkvæmt reglugerð sjóðsins; Menningar- og samfélagsverkefni, Rannsókna- og menntastyrkir og Íþrótta- og æskulýðsstyrkir.
Í flokknum Menningar- og samfélagsverkefni hlutu 19 aðilar styrki, rúmlega 2,9 milljónir króna:
-Blásarasveit Akureyrar- Til að fara á stórhátíð evrópska skólahljómsveita í Gautaborg.
-Hrútavinafélag Raufarhafnar- Vegna hrútadaga.
-Alexander Smári Kristjánsson Edelstein- Vegna náms í píanóleik og tónleikaferða.
-Vilhjálmur B. Bragason- Til að halda vinnubúðir fyrir upprennandi tónskáld og textahöfunda.
-Sumartónleikar í Akureyrarkirkju- Fjórir tónleikar í Akureyrarkirkju sumarið 2019.
-AkureyrarAkademían- Til að halda fyrirlestra á öldrunarheimilum.
-Kvennakór Akureyrar- Til að taka þátt í kóramóti á Ítalíu sumarið 2019.
-Rauði krossinn við Eyjafjörð- Til reksturs Ungfrú Ragnheiðar, sem er verkefni er aðstoðar einstaklinga í vímuefnavanda.
-Þórduna nemendafélag VMA, Leikfélag VMA Til að setja upp söngleikinn Bugsy Malone í Hofi.
-Þroskahjálp á Norðurlandi Eystra- Til útgáfu bókar um sögu málefna þroskaheftra og fatlaðra á Norðurlandi.
-Leikfélag Hörgdæla- Til kaupa á ljósabúnaði.
-Markus Meckl- Til að halda ritlistarsamkeppni fyrir börn af erlendum uppruna á Akureyri.
-Hollvinafélag Húna II- Til endurbóta á bátnum.
-Iðunn Andradóttir- Vegna náms í Ballettakademien í Stokkhólmi.
-Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri- Vegna verkefninsins Orðaleiks, sem styður íslenskunám barna af erlendum uppruna.
-Karlakór Eyjafjarðar- Til að halda tónlistarviðburð til minningar um Eydalsbræður.
-Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Akureyri- Til að halda Vísindaskóla unga fólksins.
-Þóra Kristín Gunnarsdóttir- Vegna náms í klassískum píanóleik í Sviss.
-Leikfélag Fjallabyggðar- Til að ráða til sín leikstjóra fyrir leikárið 2019.
Í flokknum Íþrótta- og æskulýðsmál hlutu 20 aðilar styrki, samtals að fjárhæð 7,5 milljónir króna:
-KA aðalstjórn
-Þór aðalstjórn
-Skíðafélag Akureyrar
-Völsungur
-Hestamannafélagið Léttir
-Ungmennafélag Svarfdæla Dalvík
-Akureyri handboltafélag
-Skíðafélag Dalvíkur
-Íþróttafélagið Magni
-Þór KA kvennaknattspyrna
-Sundfélagið Óðinn
-Skautafélag Akureyrar
-Hestamannafélagið Funi
-Ungmennafélagið Smárinn, Hörgársveit
-Hestamannafélagið Gnýfari, Ólafsfirði
-Karatefélag Akureyrar
-Skíðfélag Ólafsfjarðar
-Héraðssamband Þingeyinga
-Íþóttafélagið Akur
-KFUM & KFUK á Akureyri
Í flokknum Ungir afreksmenn, hlutu 19 aðilar styrk hver að upphæð kr 150.000.-
-Alexander Heiðarsson, júdó
-Kara Gautadóttir, kraftlyftingar
-Silvía Rán Björgvinsdóttir, íshokkí
-Berenka Bernat, júdó
-Glódís Edda Þuríðardóttir, knattspyrna
-Aron Birkir Stefánsson, knattspyrna
-Hulda Björg Hannesdóttir, knattspyrna
-Andrea Ýr Ásmundsdóttir, golf
-Ísabella Sól Tryggvadóttir, siglingar
-Baldur Vilhelmsson, snjóbretti
-Sigþór Gunnar Jónsson, handbolti
-Unnur Árnadóttir, blak
-Hafþór Vignisson, handbolti
-Ólöf Marín Hlynsdóttir, handbolti
-Guðni Berg Einarsson, skíði
-Lárus Ingi Antonsson, golf
-Arndís Atladóttir, sund
-Fannar Logi Jóhannesson, frjálsíþróttir
-Védís Elva Þorsteinsdóttir, boccia
Sex verkefni hlutu styrk í flokknum Styrkir til Rannsókna- og menntamála, samtals 1,9 milljónir króna.
-Rannsóknamiðstöð ferðamála – Til að gera ferðahegðunar- og útgjaldakönnun meðal farþega skemmtiferðaskipa.
-Verkmenntaskólinn á Akureyri, starfsbraut- Til áframhaldandi þróunar starfsbrautarinnar.
-Námsbraut í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri – Til að halda ráðstefnuna Löggæsla og samfélagið.
-Fræðafélag um forystufé – Til að gera athugun á næmni forystufjár gegn riðu.
-Vera Kristín Vestmann Kristjánsdóttir – Til að kortleggja og setja í samhengi áhrif tilkomu samfélagsmiðla á stjórnmál.
-Skafti Ingimarsson – Til að rannsaka ævi og störf Einars Olgeirssonar.