Jólatré fjarlægð í næstu viku
Starfsmenn Akureyrarbæjar fjarlægja jólatré sem sett hafa verið við lóðarmörk í næstu viku, 6.-10. janúar. Einnig verða gámar staðsettir við Kaupang, Hagkaup, Hrísalund, Bónus Naustahverfi, Bónus Langholti og verslunarmiðstöðina Sunnuhlíð þar sem verður hægt að losa sig við tré.
Fólk getur sömuleiðis sett notaða flugelda við lóðarmörk og verða þeir fjarlægðir um leið. Ef fólk kýs að henda flugeldarusli sjálft þá fer það í almennt sorp, en ekki í endurvinnslu, segir á vef Akureyrarbæjar.