Iceland Winter Games haldið í sjötta sinn

Iceland Winter Games verður haldið í mars.
Iceland Winter Games verður haldið í mars.

Iceland Winter Games (IWG) vetrarhátíðin verður haldin á Akureyri dagana 20.-22. mars n.k. en um alþjóðlega vetraríþróttahátíð er að ræða. Þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram og segir í tilkynningu að hátíðin sé búin að festa sig í sessi, jafnt hjá bæjarbúum sem og innlendum og erlendum áhugamönnum um vetraríþróttir.

Aðalviðburður leikanna í ár verður keppni á snjóskautum, en keppt verður í þrem greinum innan þess; Bonefight, Freestyle og Red Bull run. Bonefight keppnin er liður í heimsmeistaramóti á snjóskautum og eins og staðan er í stigagjöfinni í dag er mjög líklegt að það verði Akureyringaslagur um heimsmeistaratitilinn í kvennaflokki en þær Katrín Karítas Viðarsdóttir og Laufey Anna Egilsdóttir eiga báðar mikla möguleika á titlinum.

„Ef svo verður gæti Ísland orðið fyrsta landið til þess að eiga heimsmeistara í öllum flokkum á snjóskautum. Fyrir eiga Akureyringar tvo fyrrum heimsmeistara Ísak Andra Bjarnason, árið 2018 í Bonefight og Inga Frey Sveinbjörnsson sem var þrefaldur heimsmeistari í Freestyle árin 2015, 2016 og 2017,“ segir í tilkynningu.

Vélsleðaspyrna Ey-Lív verður á sínum stað í Hlíðarfjalli þar sem allir flottustu vélsleðar landsins verða saman komnir í spyrnukeppni. Einnig verður Fjórkrossmót Hjólreiðafélags Akureyrar haldið í Hlíðarfjalli og verða þar samankomnir allir helstu fjallahjólarar landsins. Nýjung í ár verður fjölskyldudagur í Kjarnaskógi á sunnudeginum. Meðal viðburða verða snjókarlakeppni, rafmagnshjólakynning og samhjól, gönguskíðakynning og skíðaskotfimi, brauðbakstur og poppað yfir eldi og skátarnir verða með kynningu á sínu starfi og viðburði.

Á Glerártorgi fer svo fram vetrartækjasýning í tengslum við hátíðina þar sem gestir og gangandi geta virt fyrir sér gömul og  ný tæki í heimi vetrarútivistar.

 

Nýjast