Hvert er hlutverk sveitarfélaga í þjóðarátaki gegn ofbeldi meðal barna

Sunna Hlín Jóhannesdóttir oddviti Framsóknar á Akureyri skrifar
Sunna Hlín Jóhannesdóttir oddviti Framsóknar á Akureyri skrifar

Umræðan um ofbeldi meðal ungs fólks hefur verið áberandi okkur síðustu vikur og langar mig til að byrja á því að votta aðstandendum Bryndísar Klöru samúð mína og þakka þeim fyrir sitt sterka ákall um breytingar. 

Ég tel afar mikilvægt að við sem kjörnir fulltrúar tökum umræðuna um hvert hlutverk okkar er og hvernig við sinnum kallinu. Er það ekki okkar hlutverk að leiða samtalið í okkar nærsamfélagi? Er ekki kominn tími til að við setjumst niður og ræðum hvernig við sem samfélag getur gert betur og tekið betur utan um börnin okkar. Fengið heimilin í lið með okkur, skólana, foreldrafélögin, hverfin og ekki síst börnin sjálf.

Ofbeldi er samfélagsvandamál, við upprætum það ekki öðruvísi en með samstilltu átaki. 

Fyrsta skrefið er að taka punktstöðuna í okkar sveitarfélagi. Við verðum að tala opinskátt um hlutina en þó án þess að tala um einstök mál. Niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar eru reglulega kynntar og gefa okkur góðar vísbendingar um stöðuna. Þegar hættumerkin birtast þá verðum við að bregðast við með aðgerðum og kynna niðurstöðurnar vel fyrir heimilinum líka. Við þurfum líka að hlusta á fólkið sem vinnur með börnum alla daga; starfsfólk í félagsmiðstöðvum, skólum, heilbrigðisstofnunum og lögreglu sem dæmi.

Þróun sem við getum ekki sætt okkur við

Í sumar var kynnt skýrsla og aðgerðaáætlun stjórnvalda til að sporna gegn ofbeldi meðal ungs fólks og vopnaburði. Þar kemur fram að tilkynningar um ofbeldisbrot sem börn fremja voru árið 2018 542 en eru 1072 árið 2023. Þróun sem við getum ekki sætt okkur við. 

Aðgerðahópur var svo settur af stað 4. september síðastliðinn til að vinna að því að hraða aðgerðum og meta stöðuna enn frekar. Þar af snúa þó nokkrar að sveitarfélögum sem við þurfum að taka föstum tökum.  Þetta er samvinna mennta- og barnamálaráðuneytis, dómsmálaráðuneytis og heilbrigðismálaráðuneytis. Þverfagleg nálgun sem við þurfum einnig að taka upp heima í héraði og með samfélaginu. 

Í umræðu á bæjarstjórnarfundi á þriðjudaginn verður ítarlegri umræða um hlutverk sveitarfélaga í samstilltu þjóðarátaki gegn ofbeldi meðal barna sem er vonandi bara byrjunin á samstilltu átaki.

 


Athugasemdir

Nýjast