H&M opnar á Glerátorgi

Séð yfir Glerártorg. Mynd/Hörður Geirsson.
Séð yfir Glerártorg. Mynd/Hörður Geirsson.

H&M verslun mun opna á Glerártorgi á Akureyri í samstarfi við Eik fasteignafélag hf. Áætluð opnun er haustið 2020. Þetta verður fjórða verslunin sem sænska fatamerkið opnar hér á landi en keðjan kom fyrst hingað til lands árið 2017. Verslunin á Glerártorgi verður sú fyrsta sem verður staðsett utan höfuðborgarsvæðisins.

H&M verslunin á Glerártorgi verður um 1.300 fermetrar að stærð, full af tísku og gæðum á hagkvæmasta verðinu, framleitt með sjálfbærum hætti, segir í fréttatilkynningu. Verslunin mun bjóða uppá breitt úrval af nýjustu stílum og trendum ásamt klassískri tísku. Í versluninni verður fáanlegur dömu- og herrafatnaður ásamt barnafatnaði og snyrtivörum. 

,,Við erum ótrúlega spennt að færa út kvíarnar og opna verslun fyrir utan höfuðborgarsvæðið og geta þannig boðið viðskiptavinum okkar á Norðurlandi tísku og gæði á hagkvæmasta verðinu, framleitt á sjálfbæran máta. Við erum virkilega ánægð með veru okkar á landinu og verður H&M á Glerártorgi frábær viðbót við verslanir okkar á Íslandi," segir Dirk Roennefahrt framkvæmdarstjóri H&M á Íslandi og Noregi.

,,Samningurinn við H&M er í samræmi við stefnu Eikar fasteignarfélags um að styrkja Glerártorg," segir Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar fasteignafélags hf.

"Vinsæl verslun á borð við H&M mun laða að sér enn stærri hóp af gestum, sem mun einnig hafa jákvæð áhrif á aðrar verslanir á Glerártorgi. Við erum afar stolt af því að geta boðið íbúum á Norðausturlandi upp á H&M verslun. Sterkara Glerártorg mun einnig styðja við Akureyri sem miðstöð verslunar og þjónustu á norðausturhluta landsins."

Nýjast