Hlíðarfjall verður opnað á laugardaginn

Skíðavertíðin hefst um helgina.
Skíðavertíðin hefst um helgina.

Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar verður opnað kl. 10 laugardagsmorguninn 8. desember. Fjarkinn verður ræstur og einnig opnað í Hólabraut og Töfrateppið skríður af stað fyrir yngsta skíðafólkið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akureyrarbær. Hægt er að kaupa vetrarkort í Hlíðarfjall á forsöluverði til og með laugardeginum 8. desember á heimasíðu Hlíðarfjalls.

Nýjast