Hjólum ítrekað stolið á Akureyri

Mynd/Lögreglan.
Mynd/Lögreglan.

Lögreglan á Norðausturlandi, þá sérstaklega á Akureyri, hefur fengið margar tilkynningar um að stolið hafi verið reiðhjólum við hús fólks og kveðið hefur ansi rammt að þessu að undanförnu. Þetta kemur fram á Facebooksíðu lögreglunnar.

Ennfremur hefur borið á því að sést hafi til manna vera að taka í húna á bílhurðum til að reyna að komast inn til að verða sér úti um verðmæti.

„Við viljum biðja ykkur að hýsa hjólin ykkar, sé ykkur það fært eða læsa þeim tryggilega og láta þau ekki liggja óvarin eða á áberandi stöðum framan við húsin ykkar. Ennfremur að læsa bílunum ykkar hvarvetna í bænum. Lögregla mun fylgjast vel með og taka hjól sem liggja á víðavangi eða eru skilin eftir langtímum saman á almannafæri,“ segir í færslu lögreglunnar.

Nýjast