Heilsugæslustöðvarnar verða tvær

Núverandi húsnæði heilsugæslunnar er ófullnægjandi. Auglýst verður eftir nýju húsnæði í byrjun næsta…
Núverandi húsnæði heilsugæslunnar er ófullnægjandi. Auglýst verður eftir nýju húsnæði í byrjun næsta árs.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að við endurnýjun húsnæðis fyrir heilsugæsluþjónustu á Akureyri verði gert ráð fyrir tveimur starfsstöðvum heilsugæslu í bænum. Frá þessu er greint á vef Stjórnaráðsins. Þar segir að miðað sé við að auglýsa eftir húsnæði fyrir stöðvarnar í byrjun  næsta árs. Ákvörðun ráðherra er í samræmi við vilja stjórnenda Heilbrigðisstofnunar Norðurlands og tillögu ráðgjafafyrirtækis sem vann skýrslu um húsnæði heilsugæslunnar á Akureyri fyrir stofnunina í lok síðasta árs.

Heilsugæslan á Akureyri er rekin í gömlu húsnæði í Hafnarstræti sem þykir ófullnægjandi og ekki standast nútímakröfur, hvorki varðandi aðgengi né aðbúnað starfsfólks eða notenda þjónustunnar. Um 20.600 manns eru skráðir á stöðina og eru það umtalsvert fleiri einstaklingar en að jafnaði eru skráðir við heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu. Heilbrigðisráðherra segir mikilvægt að ákvörðun í þessu máli liggi fyrir þannig að unnt sé að hefjast handa við öflun húsnæðis.

„Það er löngu tímabært að færa heilsugæsluþjónustuna á Akureyri í fullnægjandi húsnæði. Stjórnvöld leggja áherslu á að efla heilsugæsluna sem fyrsta viðkomustað fólks í heilbrigðiskerfinu þar sem aðgengi er gott og þjónustan þverfagleg. Aðlaðandi starfsumhverfi sem mætir vel þörfum starfsfólks og notenda skiptir máli í því samhengi“ segir Svandís Svavarsdóttir.

Nýjast