13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Handverkshátíð á Hrafnagili um næstu helgi
Handverkshátíðin á Hrafnagili hefur fyrir löngu fest sig í sessi og er ein af elstu og fjölsóttustu sumarhátíðum á landinu. Hátíðin verður nú haldin í 27. sinn um komandi helgi, dagana 8.-11. ágúst næstkomandi.
Markmið Handverkshátíðarinnar er að fá sýnendur með fjölbreytt handverk og sýna gestum þá miklu grósku, metnað og fagmennsku sem er í íslensku handverki. Sýning af þessu tagi veitir gestum innblástur og innsýn í þróun handverks á sama tíma og hún kynnir og kveikir áhuga á hefðbundnum handverkshefðum. Handverksfólkið kemur víða að af landinu og má fullyrða að hver og einn sýnandi fái gott tækifæri til að kynna sig og sitt handverk á hátíðinni fyrir landsmönnum þar sem mikill fjöldi gesta sækir hana á ári hverju.
Allir leggjast á eitt
Eitt af því sem skapar Handverkshátíðinni sérstöðu er hvernig samfélagið allt í Eyjafjarðarsveit leggst á eitt til að láta hátíðina verða að veruleika á ári hverju. Ungmennafélagið, Slysavarnarsveitin, kvefélögin, hestamannafélagið, Búsaga og Lionsklúbburinn svo einhverjir séu nefndir taka þátt í undibúningi, uppsetningu og vinnu kringum hátíðina sjálfa. Góð samvinna allra aðila tryggir að hátíðin er eins góð ár eftir ár og raun ber vitni.
Hreinn er heiðursgestur
Heiðursgesturinn í ár er alþýðulistamaðurinn Hreinn Halldórsson. Hreinn skapar tréskúlptúra/styttur í frítíma sínum. Stytturnar bera sín nöfn og séreinkenni. Sum þeirra má rekja til íslenskra bókmennta og ævintýra en síðustu ár hefur listsköpunin snúið að sígildum ævintýrum. Von er á nýjum styttum frá Hreini sem ekki hafa verið sýndar áður og munu þær prýða útisvæðið.
Einnig munum gestir fá að sjá og heyra heimasmíðaðan lírukassa, listasmiðja verður fyrir börnin, Miðaldahópurinn, Þjóðháttafélagið Handraðinn og Búsaga verða á sínum stað. Í bland við fasta liði verða um 30 nýliðar á svæðinu svo margt nýtt verður líka að sjá.
Handverkshátíðin á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit stendur yfir dagana 8.-11. ágúst næstkomandi og er sýningin opin alla daga frá kl. 11 til 18.