Gestum Amtbókasafnsins fjölgar á milli ára

Amtbókasafnið á Akureyri.
Amtbókasafnið á Akureyri.

Gestir Amtsbókasafnsins á árinu 2019 voru 103.402 og fjölgaði um þrjú prósent frá árinu 2018. Þetta er annað árið í röð sem gestum fjölgar. Heildarútlán ársins 2019 voru 152.930, eða að jafnaði átta á hvern íbúa Akureyrarbæjar, og er það sömuleiðis aukning um þrjú prósent milli ára. Útlán á spilum jukust um 137 prósent frá árinu á undan. Í fyrra var gjaldtöku fyrir mynddiska hætt og við það jukust útlán á mynddiskum um 76 prósent. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.  

Nýjast