Frítt í sund og á skíði í vetrarfríi

Hlíðarfjall.
Hlíðarfjall.

Akureyrarbær býður í sund og á skíði í vetrafríinu sem nú er farið af stað. Á heimasíðu bæjarins segir að miðvikudaginn 26. febrúar, fimmtudaginn 27. febrúar og föstudaginn 28. febrúar geti grunn- og framhaldsskólanemar á Akureyri farið í skíðalyfturnar í Hlíðarfjalli og í sundlaugar Akureyrarbæjar án endurgjalds. 

Grunnskólanemendur gefa upp kennitölu og nafn skóla í afgreiðslu og framhaldsskólanemar VMA og MA framvísa nemendaskírteinum.  "Athugið að krakkarnir þurfa að eiga rafrænt kort eða kaupa slíkt á 1.000 krónur í skíðalyfturnar. Kortin fást í afgreiðslu Hlíðarfjalls," segir í frétt bæjarins. 

Nýjast