Frístundastyrkurinn hækkar í 40 þúsund krónur

Mynd/Þórir Tryggvason.
Mynd/Þórir Tryggvason.

Ákveðið var við gerð fjárhagsáætlunar Akureyrarbæjar að hækka frístundastyrk til niðurgreiðslu gjalda vegna íþrótta- og tómstundastarfs. Styrkurinn fyrir árið 2020 nemur 40 þúsund krónum á hvern iðkanda og gildir fyrir börn og ungmenni fædd 2003 til og með 2014.

Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.

Frá árinu 2006 hefur Akureyrarbær veitt styrk til allra barna á aldrinum 6-17 ára til niðurgreiðslu á þátttökugjöldum hjá íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsfélögum. Frístundastyrkurinn hefur verið hækkaður í áföngum og hefur upphæðin fjórfaldast frá árinu 2014, líkt og sjá má á þessu yfirliti:

Ár Upphæð frístundastyrks
2006-2014 10.000
2015 12.000
2016 16.000
2017 20.000
2018 30.000
2019 35.000
2020 40.000

 

Fram kemur á vef Akureyrarbæjar að nýtingin hafi aukist samhliða hækkandi upphæð, en á allra síðustu árum hefur einnig verið lögð áhersla á að fjölga nýtingarmöguleikum. Styrkurinn einskorðast ekki við skipulagðar íþróttaæfingar eða námskeið myndlistar- eða tónlistarskóla, heldur má einnig nota hann til að kaupa aðgang að líkamsræktarstöðvum, vetrarkort í Hlíðarfjalli eða árskort í Sundlaug Akureyrar, svo eitthvað sé nefnt. 

Í þjónustugátt Akureyrarbæjar er hægt að sækja um frístundastyrk og skoða ráðstöfun þessa árs og fyrri ára. Hér eru einnig ýmsar upplýsingar um frístundastyrkinn. 

 

Nýjast