Framkvæmdir í samkomubanni

Endurnýjun bekkja í búningsklefum Sundlaugar Akureyrar er á meðal framkvæmda í sundlauginni.
Endurnýjun bekkja í búningsklefum Sundlaugar Akureyrar er á meðal framkvæmda í sundlauginni.

Sundlaugar og söfn eru lokuð fyrir gestum í samkomubanni en þessi óvenjulegi tími er notaður til nauðsynlegra framkvæmda og breytinga í Sundlaug Akureyrar og á Amtsbókasafninu. Á vef Akureyrarbæjar segir að um leið og sundlauginni hafi verið lokað hófust framkvæmdir innanhúss. Á verkefnalistanum er meðal annars að lagfæra búningsklefa og sturtur. Aðgengi að salernum verður stórbætt í kvennaklefa, skipt um skilrúm og setbekkir við skápa endurnýjaðir. Þá verður á 2. hæð útbúinn sérbúningsklefi og klefi fyrir fatlað fólk með aðstöðu fyrir aðstoðarmann.

10 þúsund bækur á nýjan stað

Á Amtsbókasafninu hafa verið gerðar miklar breytingar á 2. hæðinni. Lesaðstaða sem var í norðurhluta er nú í suðurhlutanum. Við þetta voru allar hillur færðar til og rúmlega 10 þúsund bindi bóka hafa fengið nýjan stað. Með þessum tilfæringum eykst rými fyrir setusvæði og er ætlunin að fjölga borðum og stólum. Gestir geta því í auknum mæli notað safnið til vinnu og afþreyingar af ýmsu tagi og notið útsýnisins. Mikið af safnefni hefur undanfarna daga verið flutt til um leið og búið er til meira pláss.

Nú þegar hefur ein geymsla á 2. hæð verið tæmd og er hugmyndin að nota rýmið fyrir aðra starfsemi í framtíðinni, til dæmis fundahöld eða klúbbastarf. 

„Allar þessar breytingar stuðla að því að við tökum vel á móti gestum okkar með breyttu og bættu safni þegar Covid-19 faraldurinn er afstaðinn,“ segir Sigrún Ingimarsdóttir, settur amtsbókavörður.

Nýjast