13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
93 komnir í sóttkví á Norðurlandi eystra
Alls eru 93 í sóttkví á Norðurlandi eystra og hefur fjöldinn farið hratt upp á við frá miðjum deginum í gær en þá var fjöldinn í kringum 20. Eins og greint var frá í gær greindist eitt Covid 19-smit á Akureyri um sl. helgi og var í kjölfarið lokað tveimur deildum á leikskólanum Hólmasól.
Börn og kennarar á deildunum tveimur verða í sóttkví til 27. mars.
Smitum hefur ekki fengið fjölgað á svæðinu enn sem komið er. Staðfest smit á landinu eru orðin 220 og eru 2.161 í sóttkví.