Flogið beint til Amsterdam næsta vetur

Flugvél Transiva við lendingu á Akureyrarflugvelli.
Flugvél Transiva við lendingu á Akureyrarflugvelli.

Fyrsta ferð hollenska flugfélagsins Transavia með ferðamenn á vegum Voigt Travel kom til Akureyrar í gærmorgun frá Rotterdam. Þetta er fyrsta flugið af 16 hjá Transavia í sumar til höfuðstaðar Norðurlands. Við þetta tækifæri tilkynnti Cees van den Bosch, framkvæmdastjóri Voigt Travel, að ákveðið hefði verið að fljúga frá flugvellinum á Akureyri til Amsterdam næsta vetur. Flogið yrði á mánudögum og föstudögum frá 14. febrúar. Farnar yrðu alls átta ferðir.

Í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands segir að flugleiðin sé afrakstur viðamikils samstarfs Transavia og Voigt Travel. Flugfélagið hefur flogið til Lapplands í Finnlandi og Svíþjóð og norðurhluta Noregs um árabil fyrir Voigt Travel. Nú hefur Íslandi verið bætt við lista áfangastaða þess við heimskautsbauginn. „Ísland hefur aldrei verið vinsælla, en aðallega fyrir stutt stopp sem viðkomustaður, og þessi magnaði áfangastaður á betra skilið en það,“ segir Cees van den Bosch, forstjóri Voigt Travel, sem var meðal farþega í þessu flugi til Akureyrar. „Þess vegna höfum við vísvitandi valið að fljúga til Akureyrar til að gera farþegum okkar kleift að ferðast strax utan alfaraleiða og taka sér tíma til að kanna landið. Norðurhluti Íslands er enn að miklu leyti ósnortinn og þar má finna alveg jafnmikið af fossum, svörtum ströndum, eldfjöllum og leirböðum og á Suðvesturlandi.“

Nýr og spennandi valkostur

„Við bjóðum Voigt Travel og viðskiptavini þeirra velkomna til Norðurlands. Með opnun þessarar nýju gáttar til Íslands um flugvöllinn á Akureyri býðst ferðamönnum nýr og spennandi valkostur þegar þeir heimsækja landið,“ segir Hjalti Páll Þórarinsson, verkefnastjóri á Markaðsstofu Norðurlands. „Með því að lenda á miðju Norðurlandi bjóðast tækifæri til að sjá marga fallegustu staði Íslands og upplifa norðurslóðir í sinni tærustu mynd, allt frá öflugasta fossi Evrópu og yfir í hvalaskoðun við Heimskautsbauginn. Vikulegt flug Transavia fyrir Voigt Travel milli Rotterdam og Akureyrar í sumar skiptir sköpum fyrir okkur og þróun okkar sem áfangastaðar. Við erum mjög ánægð með samstarfið við Voigt Travel sem veitir gestum okkar tækifæri til að komast í tæri við alla þá ósviknu og spennandi upplifun sem Norðurland hefur upp á að bjóða,“ segir Hjalti Páll.

Nýjast