Fjölbreytt dagskrá hjá Menningarfélaginu
Nóg verður um að vera hjá Menningarfélagi Akureyrar um helgina. Í kvöld, fimmtudaginn 1. nóvember verður þriðja sýningin á söngleiknum Kabarett í Samkomuhúsinu. Kabarett hefur fengið einstaklega jákvæðar viðtökur. Fjórða sýningin er svo á laugardagskvöldið 3. nóvember. Á föstudaginn 2. nóvember hefst Strengjamót Tónlistarskóla Akureyrar þar sem um 200 börn koma saman í Hofi. Fjörið nær svo hátindi á sunnudaginn með sameiginlegum tónleikum hljóðfæraleikarana ungu.
Á laugardagskvöldið 3. nóvember verða risa tónleikar í Hamraborg þegar Halloween Horror Show mætir með „hryllilegustu tónleikasýningu sögunnar“, er segir í tilkynningu. Á meðal þeirra sem koma fram eru Magni, Birgitta Haukdal, Stebbi Jak, Greta Salóme, Dagur Sigurðsson og Ólafur Egilsson ásamt karlakór, hljómsveit, bakröddum, dönsurum og leikurum. „Um alvöru tónleikasýningu er að ræða þar sem öllu er tjaldað til og enginn fer óskelkaður út,“ segir um verkið.
Sunnudagsmorguninn hefst svo á rólegri nótunum með skemmtilegum barnamorgni fyrir allra minnstu börnin. Þessi þriðji barnamorgun vetrarins ber nafnið Krílasöngvar með Sigrúnu Mögnu. Leikin verða lög og leikir í rólegu umhverfi með áherslu á tengsl snertingar, söngs og hljóðfæri. Sungin eru þekkt barnalög og þulur og notaðar hristur og fleiri hljóðfæri. Enginn aðgangseyrir er á barnamorgna en Norðurorka styrkir viðburðina.