Fiskideginum mikla á Dalvík aflýst í ár

Mynd/Bjarni Eiríksson.
Mynd/Bjarni Eiríksson.

Í ljósi aðstæðna hefur stjórn Fiskidagsins mikla ákveðið að fresta afmælishátíðinni um eitt ár. Fiskidagurinn mikli er 20 ára í ár og undirbúningur var hafin fyrir afmæli fjölskylduhátíðarinnar sem vera átti 7.-9. ágúst 2020. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fiskideginum.

„Saman förum við í gegnum þetta verkefni sem okkur hefur verið rétt upp í hendurnar, verum áfram einbeitt og hlýðum þríeykinu sem vinnur ásamt sínu fólki afar gott starf. Við skulum muna að tapa aldrei gleðinni. Við komum sterk inn að ári og þá knúsumst við og njótum samvista við fólkið okkar og gesti. Veriði velkomin á 20 ára afmæli Fiskidagins mikla 6 .– 8. ágúst 2021,“ segir í tilkynningu.

Þar segir ennfremur að styrktaraðilar Fiskidagsins, sem eru vel á annað hundrað, fá á næstu dögum bréf þar sem þakkað er fyrir frábært samstarf liðinna ára og óskað eftir því að þeir yfirgefi Fiskidaginn ekki og komi ferskir inn í nýtt afmælisár.

 

Nýjast