Ekkert smit greinst á Akureyri í 17 daga

Mynd/Auðunn Níelsson.
Mynd/Auðunn Níelsson.

Ekki hefur greinst smit af Covid-19 veirunni á Akureyri síðan 5. apríl sl. eða í um tvær og hálfa viku, samkvæmt upplýsingum blaðsins. Alls hafa 46 einstaklingar greinst með veiruna á Norðurlandi eystra, langflestir á Akureyri. Þá eru 28 manns í sóttkví á svæðinu.

Alls hafa 1785 greinst með Covid-19 veiruna á landsvísu og 898 eru í sóttkví. Tíu hafa látist úr sjúkdómnum.

Nýjast