Dagskrá Þjóðhátíðardagsins á Akureyri

Frá 17. júní í fyrra.
Frá 17. júní í fyrra.

Vegleg dagskrá verður á Akureyri á Þjóðhátíðardaginn 17. Júní sem ber upp á mánudegi. Hefst hátíðardagskrá klukkan 13:00 í Lystigarðinum. Þaðan er farið í skrúðgöngu niður í miðbæ þar sem boðið er upp á fjölskylduskemmtun um daginn og svo aftur um kvöldið og fram að miðnætti. Dagskrá lýkur með marseringu nýstúdenta Menntaskólans á Akureyri á torginu um miðnætti. Skátafélagið Klakkur hefur séð um skipulag hátíðarhaldanna á Ráðhústorgi síðan 2008.

Dagskrá Þjóðhátíðardagsins 2019: 

Kl. 13-13.50: Hátíðardagskrá í Lystigarðinum

Lúðrasveit Akureyrar. Stjórnandi: Sóley Björk Einarsdóttir.

Fánahylling og hugvekja. Séra Jóhanna Gísladóttir.

Kvennakór Akureyrar. Stjórnandi: Petra Björk Pálsdóttir.

Ljóðalestur: Anna Kristjana Helgadóttir ungskáld.

Hátíðarávarp: Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri.

Óli Trausta syngur og leikur af fingrum fram.

Kl. 14: Skrúðganga frá Lystigarðinum að Ráðhústorgi

Lögregla, Lúðrasveit Akureyrar og Skátafélagið Klakkur leiða gönguna.

Kl. 11 og 17: Leikhópurinn Lotta í Lystigarðinum.

Miðaverð 2.500 kr. Ekki þarf að panta miða.

Kl. 14-16: Fjölskyldu- og hátíðardagskrá á Ráðhústorgi

Leikhópurinn Lotta kynnir hátíðardagskrána

Lýðveldiskakan í boði fyrir alla

Fjallkonan flytur ávarp

Nýstúdent flytur ávarp

Danshópurinn Steps

Tónlistaratriði:

DayDream, Embla Sól og Anton Líni

Skátatívolí frá kl. 14-17

Kl. 21 til miðnættis: Kvölddagskrá á Ráðhústorgi

Tónlistaratriði: Særún Elma, Embla Björk, Dana Ýr, Tumi og Birkir Blær.

Vandræðaskáldin gera grín 

Hvanndalsbræður halda uppi stuðinu frá kl. 23 til miðnættis.

Kl. 23.30: Marsering nýstúdenta frá Menntaskólanum á Akureyri

 

Nýjast