Boðið upp á dreifingu á greiðslum fasteignagjalda

Akureyri. Mynd/Auðunn Níelsson.
Akureyri. Mynd/Auðunn Níelsson.

Einstaklingar sem eiga íbúðarhúsnæði á Akureyri og hafa orðið fyrir verulegu tekjufalli í kjölfar Covid-19 faraldursins geta nú sótt um að fjölga gjalddögum þeirra fasteignagjalda sem eftir eru á árinu og þannig dreift greiðslum. Sex gjalddagar geta komið til dreifingar, frá apríl til september, en hægt er að sækja um að þeir verði níu og sá síðasti þá 3. desember. Frá þessu er greint á vef Akureyrarbæjar.

Sótt er um í þjónustugátt á heimasíðu sveitarfélagsins, Akureyri.is, undir „Umsóknir". Segir á vef bæjarins að þessi rýmkun gjalddaga sé hluti af aðgerðaáætlun Akureyrarbæjar til að bregðast við samfélagslegum og efnahagslegum áhrifum Covid-19. Þá er unnið að útfærslu gjalddaga fyrir atvinnuhúsnæði í bænum og verður það kynnt fljótlega eftir páska.

Nýjast