Birgir Orri sigurvegari í stuttmyndakeppninni

Frá verðlaunaafhendingunni. Kjartan Sigtryggsson verkefnastjóri menningarmála hjá Ungmenna-húsi, sig…
Frá verðlaunaafhendingunni. Kjartan Sigtryggsson verkefnastjóri menningarmála hjá Ungmenna-húsi, sigurvegarinn Birgir Orri Ásgrímsson og Hanna Björg Jónsdóttir kvikmyndagerðamaður og dómari keppninnar. Mynd/Akureyri.is

Sigurvegari í stuttmyndakeppninni Stulla í ár var Birgir Orri Ásgrímsson nemandi í Brekkuskóla. Myndin ber titillinn Sveitapiltur og þótti að mati dómnefndar bera af hvað varðar persónusköpun, myndatöku og klippingu. Birgir Orri fékk í verðlaun 100.000 krónur. Greint er frá þessu á vef Akureyrarbæjar.

Stuttmyndakeppnin Stulli er árleg stuttmyndakeppni fyrir ungt fólk á aldrinum 13 til 18 ára og er á vegum Ungmenna-Hússins Rósenborgar. Keppnin var haldin við hátíðlega viðhöfn í Hömrum í Hofi fimmtudagskvöldið 11. apríl. Þátttökumet var slegið í ár en alls bárust 15 stuttmyndir í keppnina.

Nýjast