13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Bandaríkjamenn keyptu flestar gistinætur árið 2019
Bandaríkin voru stærsta markaðssvæði norðlenskrar ferðaþjónustu á síðasta ári, rétt eins og á landinu öllu. Um 4% aukning varð á seldum gistinóttum til Bandaríkjamanna miðað við árið áður, en mesta fjölgunin var í seldum gistinóttum til Kínverja eða um 17%.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands og vitnað í tölur frá Hagstofunni sem Markaðsstofa Norðurlands hefur tekið saman fyrir sitt svæði og borið saman við fyrri ár, auk þess að skipta Norðurlandi í þrjú svæði samkvæmt áfangastaðaáætlun. Í takti við þróun ársins 2018 varð aukning á seldum gistinóttum á svokölluðum „öxlum“ sem eru apríl-maí og september-október, og yfir vetrartímann sömuleiðis.
Seldum gistinóttum yfir sumarið fækkaði hinsvegar og því er heildarfjöldi seldra gistinátta nánast sá sami og árið áður.