Bæjarstjórn vill hlúa að HA

Háskólinn á Akureyri.
Háskólinn á Akureyri.

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar leggur áherslu á að tekið verði tillit til byggðasjónarmiða þegar háskólaumhverfi Íslands er til skoðunar. Mikilvægt sé að hlúa vel að Háskólanum á Akureyri þannig að hann geti sinnt hlutverki sínu. Bæjarstjórn ræddi um Grænbók um fjárveitingar til háskóla á síðasta bæjarstjórnarfundi sem hefur verið til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.

Í grænbókinni er gerð grein fyrir núverandi fjárveitingakerfi, möguleikum við hönnun á nýju kerfi og settar fram lykilspurningar til að efla umræðu um stefnu um háskóla og hvaða fyrirkomulag fjárveitinga styðji best við innleiðingu á slíkri stefnu. Í bókun bæjarstjórnar er lagt áherslu á að tekið verði tillit til byggðasjónarmiða þegar háskólaumhverfi Íslands er til skoðunar, þá ekki síst hvort ástæða sé til að taka stefnumarkandi ákvörðun um að minnka bil menntunarstigs íbúa eftir landsvæðum.

„Fullyrða má að stofnun Háskólans á Akureyri hafi verið ein besta byggðaaðgerð sem farið hefur verið í. Mikilvægt er að hlúa vel að stofnuninni og að hún sé fjármögnuð þannig að hún nái að sinna hlutverki sínu,“ segir í bókun bæjarstjórnar.

Nýjast