Ánægt ferðafólk í Hrísey

Hrísey.
Hrísey.

Niðurstöður könnunar sem gerð var meðal ferðafólks í Hrísey síðasta sumar leiðir í ljós að náttúran og lega eyjunnar á miðjum Eyjafirði sé m.a. það sem dregur fólk til staðarins. Ferðamenn virðast einnig margir hverjir sækja til Hríseyjar til að komast í rólegra umhverfi og til að upplifa friðsældina í eyjunni. Frá þessu er greint á heimasíðu Akureyrarbæjar.

Ferðamenn eru heilt yfir mjög ánægðir með ferðina til Hríseyjar en 92% þeirra meta dvöl sína sem frábæra eða yfir meðallagi góða. Helstu athugasemdir um úrbætur sem ferðamenn nefna í opnum svörum er að merkingar á gönguleiðum mættu vera betri ásamt almennri upplýsingagjöf um Hrísey, hvað sé í boði og hvar allt sé að finna. Hvað varðar samgöngur til Hríseyjar, þá kölluðu ferðamenn sérstaklega eftir samræmdari og betri tengingum milli strætó- og ferjuferða.

Strætóferðum mætti fjölga, samræma tímasetningar og hafa strætóstoppistöð nær bryggjunni á Árskógssandi. Könnunin var á vegum Akureyrarstofu og Ferðamálafélags Hríseyjar og var markmiðið að afla upplýsinga um ferðahegðun og upplifun ferðamanna í Hrísey. Segir í frétt Akureyrarbæjar að niðurstöður könnunarinnar verði hafðar til hliðsjónar við markaðssetningu og uppbyggingu Hríseyjar.

Nýjast