Akureyringur valinn skyndihjálparmaður ársins

Guðni Ásgeirsson.
Guðni Ásgeirsson.

Skyndihjálparmaður ársins 2018 er Guðni Ásgeirsson frá Akureyri en hann bjargaði manni sem hafði fengið hjartaáfall  á hlaupastíg í Reykjavík. Guðni kom að manninum þar sem hann hafði lagst í jörðina, veitti honum hjartahnoð og stjórnaði aðgerðum á vettvangi með mikilli yfirvegun, er fram kemur á vef Rauða krossins.

Guðni kallað til tvo vegfarendur og fékk annan til að hringja í neyðarlínuna og hinn til að aðstoða við að veita manninum hjartahnoð. Guðni hnoðaði manninn af miklum krafti þar til sjúkraflutningarmenn komu á vettvang. Maðurinn fékk eitt rafstuð frá sjúkraflutningarmönnunum og var kominn til meðvitundar þegar hann var borinn upp í sjúkrabílinn. Á spítalanum var hann settur í aðgerð og hefur náð fullum bata í dag þökk sé hárréttum viðbrögðum Guðna á vettvangi. 

Fór á skyndihjálparnámskeið í VMA

„Ég gat ekki látið þetta afskiptalaust og treyst á að einhver annar kæmi til aðstoðar. Ég sá að það var ekki í lagi með manninn. Ég fór á skyndihjálparnámskeið í Verkmenntaskólanum á Akureyri fyrir mörgum árum. Í vinnunni hjá mér eru svo reglulega haldin stutt námskeið sem stýrði mér áfram í þessi réttu viðbrögð þennan dag,“ sagði Guðni og vill líka koma á framfæri þakklæti til þeirra sem aðstoðuð hann þennan dag. „Maður veit aldrei hvernig maður bregst við þegar maður kemur á slysi. Ég hafði í rauninni ekki hugmynd um það hvernig ég myndi bregðast við. Ég fékk ótrúlega hugarró þegar ég heyrði í manninum sem ég bjargaði rúmum sólarhring síðar og hann þakkaði mér kærlega fyrir lífsbjörgina." sagði Guðni.

-þev

Nýjast