Akureyringum fækkar um 15

Akureyri.
Akureyri.

Íbúum á Akureyri hefur fækkað um 15 frá því 1. desember 2019. Þetta kemur fram á vef Þjóðskrár Íslands. Íbúar á Akureyri eru nú skráðir 19.009 en voru 19.024 í byrjun desember sl. Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 442 á tímabilinu frá 1. desember 2019 til 1. febrúar sl.

Lítilsháttar fækkun varð í tveimur landshlutum, Norðurlandi vestra og á Norðurlandi eystra. Á Norðurlandi vestra fækkaði um 20 en íbúum á Norðurlandi eystra fækkaði um 26.  

Nýjast