Akureyrarbær fær nýtt nafn í afmælisgjöf

Akureyrarbær, afmælisbarn dagsins.
Akureyrarbær, afmælisbarn dagsins.

Akureyrarbær á afmæli í dag, 29. ágúst, og eru liðin 157 ár frá því bærinn hlaut kaupstaðarréttindi. Það er vel við hæfi að breyting á heiti sveitarfélagsins, úr Akureyrarkaupstað í Akureyrarbæ, hafi verið staðfest opinberlega í dag.

Á vef Akureyrarbæjar segir að bæjarstjórn hafi samþykkti í byrjun júní að breyta formlegu heiti sveitarfélagsins. Var það gert í kjölfar könnunar meðal íbúa sem sýndi að mikill meirihluti vildi breyta nafninu í Akureyrarbæ. Það nafn hefur enda verið notað lengi um sveitarfélagið og dregið mjög úr notkun á endingunni -kaupstaður.

Samþykktin var með fyrirvara um jákvæða umsögn örnefnanefndar og staðfestingu samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins.

Örnefnanefnd samþykkti breytinguna í lok júní og vísaði til þess í rökstuðningi að þetta væri aðeins breyting á stjórnsýsluheiti og ætti ekki að hafa áhrif á örnefnið forna Akureyri.

Nú hefur Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, einnig samþykkt breytinguna og var hún staðfest með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda í morgun, á sjálfan afmælisdaginn, segir á vef bæjarins.

 

Nýjast