50% afsláttur af húsaleigu til ferðaþjónustuaðila

Bæjarráð Akureyrar hefur samþykkt að veittur verði 50% afsláttur af húsaleigu mánuðina mars, apríl og maí til ferðaþjónustuaðila sem leigja húsnæði af Akureyrarbæ.

Þá samþykkir bæjarráð að fella niður leigu til þriðja aðila í húsnæði Akureyrarbæjar sem lokað var vegna fyrirmæla Almannavarna, þann tíma sem lokunin varði. Ákvörðun um framhald verður tekin fyrir 1. júní nk.

Nýjast