13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
10 tonn af fiski og 1.200 lítrar af súpu á Fiskideginum mikla
Það styttist óðum í Fiskidaginn mikla sem fram fer á Dalvík helgina 9. -10. ágúst. Matseðill Fiskidagsins er klár og áhugaverður að vanda. Friðrik V. er yfirkokkur og lagði línurnar að matseðlinum ásamt sínu fólki, er fram kemur í fréttatilkynningu frá Fiskudeginum mikla.
Þar má finna gamla og góða rétti eins og síld og rúgbrauð, filsurnar, sem eru fiskipylsur í brauði, harðfisk og íslenskt smjör, fersku rækjurnar og fiskborgarana. Allir drykkir á hátíðinni eru í boði Egils Appelsín.
„Sushi Corner á Akureyri mætir aftur, fiskurinn á grillunum er með nýju sniði, bleikja í Pang Gang sósu og þorskur í karamellu og mangósósu. Á bás Friðrik V. verður í boði Hríseyjarhvannargrafin bleikja og nýjung á þessum bás verða steiktar gellur. Akureyri FISH og Reykjavík FISH koma með Fish and chips. Sérbás verður með Indversku rækjusalati í boði Dögunar. Nings-fjölskyldan mætir með risasúpupottinn þar sem boðið verður uppá austurlenska rækju og bleikjusúpu. Aðstoðarkokkur Fiskidagsins mikla, Addi Yellow, stýrir sasimistöðinni þar sem langreyður frá Hval h.f og bleikja verða í boði. Grímur Kokkur mætir eftir árshlé með plokkfiskinn góða og ostafylltar fiskibollur. Moorthy og fjölskylda á Indian Curry House á Akureyri mæta einnig til baka eftir árshlé með Taandoori bleikju og Naan brauð. Kaffibrennslan býður uppá kaffi eða svartan Rúbín, Íspinnar verða frá Samhentum og Samherji býður uppá sælgæti og merki dagsins,“ segir í tilkynningu.
300 sjálfboðaliðar
Hér eru nokkrar tölulegar staðreyndir um matseðilinn á Fiskidaginn mikla: 1200 lítra súpupottur, um 10 tonn af fiski, 8000 lítrar af drykkjum, 50.000 servíettur, 300 sjálfboðaliðar, 8 metra langt grill með 20 brennurum, og pizzan sm er 120“ og sett inn í ofn með gaffallyftara, í hverri pizzu eru 640 sneiðar. Yfir daginn eru þetta um 130.000 matarskammtar.