Þórssvæðið - knattspyrnuvöllur Nesbræður buðu lægst
10. september, 2024 - 13:00
Margrét Þóra Þórsdóttir gunnar@vikubladid.is
Bæjarráð Akureyrar hefur samþykkt að taka lægsta tilboði í jarðframkvæmdir við gerð undirlags undir gervigras á knattspyrnuvöll á félagssvæði Þórs Akureyri.
Fjögur tilboð bárust. Það lægsta var frá Nesbræðrum að upphæð tæplega 110 milljónir króna og hafði umhverfis- og mannvirkjaráð áður samþykkt að ganga til samninga við Nesbræður vegna verkefnisins.
Nýjast
-
Ný glæsileg fríhöfn opnar á Akureyrarflugvelli n.k laugardag
- 17.09
Hjördís Þórhallsdóttir flugvallarstjóri á Akureyrarflugvelli segir i morgun í færslu á Facebokarvegg hennar frá opnun nýrrar fríhafnar á flugvellinum. Vefurinn fékk leyfi til þess að birta færsluna. -
Græni hatturinn Endurfundir við Kristján frá Djúpalæk og textana hans
- 16.09
Hljómsveitin Djúpilækur heldur tónleika helgaða dægurlagatextum Kristjáns frá Djúpalæk á Græna hattinum laugardaginn 26 október kl. 15. -
Námskeið fyrir konur með ADHD í boði á landsbyggðinni
- 16.09
Mikill vitundavakning hefur átt sér stað undanfarið um ADHD og þau áhrif sem ógreint og ómeðhöndlað einkenni getur haft á sjálfsmynd fólks og líðan. Mikilvægi þess að fá greiningu hefur líka verið í umræðunni og mörg þúsund Íslendingar eru á biðlistum hjá ADHD teymi heilsugæslunnar. -
Lokaorðið - Og við verðum öll að geta hlustað.
- 15.09
Það getur ekki öllum liðið alltaf vel. En það á heldur engum að líða alltaf illa. Passleg blanda er líklega best, horfa bjartsýn fram á veg, snúa baki við skugganum. Vita af þungum steinum, en láta þá ekki hafa áhrif á sig. Lífsviðhorf sem ætti að vera auðvelt og einfalt, en er það ekki fyrir marga. Alltof marga. -
Ekkert að gerast í húsnæðismálum Kisukots Samþykkt í bæjarráði fyrir 10 mánuðum að hefja samningaviðræður
- 15.09
„Vægt til orða tekið þá er ég orðin mjög þreytt á þessu. Ég er reglulega spurð að því hvernig gangi að fá stuðning frá Akureyrarbæ við Kisukot, en staðan þar er bara sú sama og verið hefur, það virðist ekkert vera að gerast. Síðustu samskipti mín við bæinn voru í apríl á þessu ár. Ég hef send nokkra tölvupósta síðan en ekki fengið svör. Það er greinilegt að áhuginn er enginn,“ segir Ragnheiður Gunnarsdóttir sem hefur um árabil rekið athvarf fyrir ketti á heimili sínu, eða frá því í lok janúar árið 2012. -
Hvert er hlutverk sveitarfélaga í þjóðarátaki gegn ofbeldi meðal barna
- 15.09
Umræðan um ofbeldi meðal ungs fólks hefur verið áberandi okkur síðustu vikur og langar mig til að byrja á því að votta aðstandendum Bryndísar Klöru samúð mína og þakka þeim fyrir sitt sterka ákall um breytingar -
Völsungspiltar í Lengjudeild í fótboltanum 2025!
- 14.09
Völsungur mun eiga lið í næst efstu deild karlafótboltans á Íslandi næsta sumar, þetta varð ljóst eftir frábæran stórsigur 8-3 á liði KFA á Reyðarfirði í dag. Liðið sem sérfróðir sunnan heiða gáfu enga möguleika á einu eða neinu í spám fyrir sumarið er svo sannarlega vel að þessum árangri komið. Þeir hafa svo dæmið sé tekið ekki lotið í lægra haldi í seinustu níu leikjum. -
Hringtorg við Lónsbakka Tilboð verkið um 90% yfir áætluðum kostnaði
- 14.09
„Við erum að skoða það að gera breytingar á hönnun sem felast í því að fella undirgöngin út á þessum stað. Það gerir framkvæmdina bæði mun ódýrari og einfaldari, svo framkvæmdatíminn mun styttast umtalsvert,“ segir Rúna Ásmundsdóttir deildarstjóri Tæknideildar á Norðursvæði Vegagerðarinnar.
Athugasemdir