Slippurinn DNG kynnti sjálfvirknilausnir á Sjávarútvegsráðstefnunni

Ásþór Sigurgeirsson, hönnuður hjá Slippnum DNG, flutti fyrirlestur á Sjávarútvegsráðstefnunni undir …
Ásþór Sigurgeirsson, hönnuður hjá Slippnum DNG, flutti fyrirlestur á Sjávarútvegsráðstefnunni undir heitinu „Þróun og samkeppni á vinnslulausnum um borð í fiskiskipum,“ Myndir aðsendar

Nýsköpunarframlag í íslenskum sjávarútvegi

Íslenskur sjávarútvegur hefur átt stóran þátt í tækniþróun á heimsvísu, þar sem fyrirtæki í greininni hafa náð góðum árangri í þróun sjálfvirkra og afkastamikilla lausna fyrir fiskvinnslu bæði til sjós og lands. Slippurinn DNG hefur lagt mikla áherslu á að mæta sívaxandi kröfum greinarinnar um aukna skilvirkni og gæði, þar sem notkun sjálfvirkra lausna stuðlar að bættri nýtingu afurða og hagkvæmni í ferlum. Lausnir Slippsins DNG eru einnig sérlega notendavænar, sem eykur notkunarmöguleika þeirra í fjölbreyttum aðstæðum og einfaldar verkferla til muna.

Með stöðugri nýsköpun hefur Ísland styrkt stöðu sína á alþjóðlegum markaði, auk þess sem aðlögun tæknilausna að breytilegum veðurskilyrðum og mismunandi tegundasamsetningu gerir fyrirtækjum kleift að mæta sérhæfðum þörfum í ólíkum löndum.

Sjávarútvegsráðstefna síðastliðinn föstudag

Þessi atriði, ásamt öðrum áherslum í sjávarútvegi, voru rædd ítarlega á Sjávarútvegsráðstefnunni síðastliðinn föstudag. Þar flutti Ásþór Sigurgeirsson, hönnuður hjá Slippnum DNG, fyrirlestur undir heitinu „Þróun og samkeppni á vinnslulausnum um borð í fiskiskipum,“ þar sem hann fór yfir mikilvægar nýjungar í tækni og framleiðslu. Ásþór tók einnig þátt í pallborðsumræðum og vakti fyrirlestur hans sérstaka athygli meðal ráðstefnugesta. Ráðstefnugestir lýstu áhuga á lausnum Slippnum DNG, sem hafa markað sér sess í því að mæta auknum gæðakröfum með nýjustu tækni í sjálfvirknivæðingu. Lausnir frá Slippnum DNG gera kleift að hámarka afköst og nýtingu í vinnsluferlum, sem stuðlar að enn betri árangri.

Frá þessu segir i tilkynningu frá Slippnum DNG

Nýjast