Opinn fundur með forsetahjónunum í Lystigarðinum

Fundurinn fer fram í Lystigarðinum.
Fundurinn fer fram í Lystigarðinum.

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Eliza Reid eiginkona hans bjóða til opins fundar í Lystigarðinum á Akureyri nk. sunnudag þann 14. júní klukkan 14:00. Forsetahjónin munu þar ræða við gesti um árin á Bessastöðum, framtíðarsýn sína og sóknarfæri Íslendinga. Einnig verður boðið upp á tónlistaratriði og ungt fólk mun verða með innlegg um upplifun sína af því að kjósa í fyrsta skipti og hvaða þýðingu kosingarétturinn hefur.

"Allir eru velkomnir en fólk er beðið að hafa smitvarnir í huga og taka tillit til þeirra sem vilja hafa tveggja metra bil milli sín og annarra," segir í tilkynningu. 

 

 

 

Nýjast