Miklir möguleikar í fiskeldi

Eyjafjarðarsveit.
Eyjafjarðarsveit.

Sveitastjórn Eyjafjarðarsveitar telur mikla möguleika til atvinnu og verðmætasköpunnar felast í fiskeldi. Þetta kemur fram í bókun á síðasta fundi sveitarstjórnar. Þar segir að hugmyndir um sjókvíaeldi í utanverðum Eyjafirði beri að skoða frá öllum hliðum áður en frekari ákvarðanir eru teknar.

„Mikilvægt er ef af verður að byggja eldið hægt upp og það sé í eigu Íslendinga þar sem um takmarkaða auðlind er að ræða,“ segir í bókun.

Nýjast