Höldum elds­voða­laus jól

Margrét Arnheiður Jónsdóttir skrifar
Margrét Arnheiður Jónsdóttir skrifar

Jólin eru handan við hornið og landinn þeysist milli staða í erindagjörðum sem hafa þann tilgang að okkur líði vel yfir hátíðarnar. En við megum ekki gleyma einu í tengslum við hátíð ljóss og friðar – brunavörnum.

Ég eins og líklega flestir aðrir hef gaman af því að lýsa upp heimilið með kertum og ýmis konar ljósaskreytingum en það hefur stundum verið skrautlegt að leysa úr „innstunguvandanum“ því á þessum árstíma finnst mér alltaf vanta fleiri innstungur á heimilinu.

Við fullorðna fólkið höfum öll heyrt forvarnarskilaboð gegnum tíðina í tengslum við að fara varlega með kerti, hafa reykskynjara í hverju herbergi, skipta um batterí einu sinni á ári í reykskynjurum og þar fram eftir götunum en börnin okkar e.t.v. ekki og því er góð vísa aldrei of oft kveðin í þeim efnum. Við þurfum líka að sýna börnunum okkar hvar slökkvitæki og eldvarnarteppi eru geymd og fara yfir flóttaleiðir húsnæðisins.

En innstunguvandinn er raunverulegur og mögulega hættulegur. Lausnin sem við grípum til er oftar en ekki fjöltengi. Það eru nokkrar meginreglur sem við þurfum að hafa í huga í tengslum við notkun á þeim:

  • Notum fjöltengi með rofa svo auðvelt sé að slökkva á raftækjum sem við þurfum ekki að nota yfir nóttina
  • Tengjum aldrei fjöltengi við annað fjöltengi vegna aukinnar hættu á yfirálagi og hitamyndun
  • Notum ekki fjöltengi fyrir orkufrek tæki eins og þvottavélar, þurrkara, ísskápa, örbylgjuofna, hraðsuðukatla og hárblásara
  • Notum aldrei fjöltengi til að hlaða rafmagnsbíla og rafmagnshlaupahjól

Margt annað ber að varast varðandi rafmagnið sem gott er að vita og gott að lesa sér til um. Við Íslendingar vitum hvað við erum heppin með rafmagn á hagstæðu verði hér á landi, erum því ansi rafmagnsvædd og stór hluti bílaflotans knúinn raforku. Gæta þarf öryggis við hleðslu ökutækja og sérstaklega skal varast að nota venjulega heimilisinnstungu við hleðslu þeirra í langan tíma. Slíkur kapall fylgir almennt rafmagnsbílum en hann er ekki hugsaður sem meginlausn við hleðslu ökutækis.

Þá er afar mikilvægt að nota eingöngu hleðslutæki sem ætluð eru viðkomandi raftækjum svo sem hleðslutækjum sem fylgja rafmagnshlaupahjólum og rafmagnshjólum, til að hlaða, en ekki bara eitthvað sem passar og virkar.

Við heyrum því miður alltof oft af eldvoðum þar sem manntjón verður sem er alltaf jafn hræðilegt og sorglegt, en þá er ekki horft til þeirra sem slasast alvarlega, þeirra sem missa ættingja í brunum sem og eignatjón. Pössum okkur sérstaklega vel yfir jólin, hugum að brunavörnum.

Samtök rafverktaka (Sart), Samtök iðnaðarins (SI) og Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) hafa gefið út leiðbeiningar um það sem gott er að vita varðandi rafmagn og brunavarnir í þeim efnum.

Við hvetjum alla til að kynna sér þær.

Höfundur er lögfræðingur Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu. 

Nýjast