Dregið úr losun með orkuskiptum í Akureyrarhöfn
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Pétur Ólafsson, hafnarstjóri á Akureyri, undirrituðu í morgun samning um styrkveitingu af fjárfestingarátaki ríkisstjórnarinnar til rafvæðingar hafnarinnar að upphæð 43,8 m.kr, að viðstaddri Ásthildi Sturludóttur, bæjarstjóra á Akureyri.
Verkefnið gengur út á að setja upp háspennutengingu fyrir flutningaskip, fiskiskip og minni skemmtiferðaskip við Tangabryggju, en undirbúningur framkvæmda er þegar hafinn. Með raftengingunni dregur úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda frá skipum í Akureyrarhöfn, sem geta þá tengst rafmagni í landi í stað þess að brenna olíu. Um leið dregur úr hljóðmengun frá skipsvélum og rafstöðvum um borð. Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri sagði við þetta tilefni að Akureyrarbær vildi vera í fararbroddi í loftslagsmálum og rafvæðing hafna væri eitt af stóru skrefunum í þá átt.
Á vef Stjórnarráðsins segir að orkuskipti og loftlagsmál eru nátengd og eru orkuskipti lykilþáttur í aðgerðaáætlun Íslands í loftlagsmálum. Unnið er að orkuskiptum á ýmsum sviðum í samræmi við þingsályktun þar um, sem samþykkt var árið 2017. Má þar nefna verkefni sem lúta að orkuskiptum á hafi og í sjávarútvegi og orkuinnviðum þeim tengdum. Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur í samstarfi við ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, úthlutað styrkjum til rafvæðingar hafna á níu öðrum stöðum á landinu á þessu ári til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Verkefnið er hluti af fjárfestingaátaki ríkisstjórnarinnar vegna Covid-19 heimsfaraldursins.