Vorsýning Skógarlundar

Málverk eftir Telmu Axelsdóttur. Myndin er fengin af vef Akureyrarbæjar.
Málverk eftir Telmu Axelsdóttur. Myndin er fengin af vef Akureyrarbæjar.

Vorsýning Skógarlundar verður opnuð í Deiglunni á morgun, laugardag klukkan 14 og stendur til kl. 17. Notendur Skógarlundar sýna þar afrakstur vinnu vetrarins; textílverk, leirmyndir, málverk og teikningar. Verkin eru til sölu og einnig verða til sýnis aðrir listmunir og nytjahlutir sem gerðir eru í Skógarlundi.

Athugið að sýningin stendur aðeins þennan eina dag en alltaf er hægt að koma í Skógarlund og kíkja við. Notendur Skógarlundar eru fullorðið fatlað fólk sem sækir þangað þjónustu.

 

Nýjast