Sundlauginn á Illugastöðum- Ljósa og kertakvöld í kvöld.
Senn líður að þvi að sundlaugin við endan á malbikinu eins og staðarhaldarar nefna sundlaugina á Illugastöðum gjarnan loki eftir gott sumar. Það er orðið að venju hjá þeim að brjóta upp normið og vera með ljósa og kertakvöld undir lok timabilsins og það er einmitt i kvöld sem þannig verður.
Á Facebooksíðu Orlofsbyggðarinnar á Illugastöðum má lesa eftirfarandi.:
,,Minnum á ljósa-/kertakvöldið í kvöld.
Sundlaugargarðurinn ljósum skreyttur, uppáhellt kaffi, ís fyrir börnin. Dagurinn lofar mjög góðu veðurfarslega séð svo það er um að gera að fá sér bíltúr og skella sér í kvöldsund því það er fátt notalegra en að svamla í volgu vatninu í rökkrinu og ljósadýrðinni........
Opið til klukkan 22 allir velkomnir og við vonumst til að sjá sem flesta "